Almennt um Stefnumót.is
Stefnumót.is er nýr stefnumóta- og samskiptavefur sérlega upp settur fyrir íslenzkra aðstæður, og býðst notendum í prófíl sínum að leggja áherslu á eitt af eftirfarandi atriðum i leit sinni að nýjum kynnum:
- Félagsskap
- Vinskap
- Rómantík
- Varanlegum kynni
- Hjúskap
- Tilbreytingu
- Ævintýri
Það að notandi merki prófíl sinn einum ákveðnum tilgangi kemur ekki í veg fyrir samskipti við fólk sem hefur merkt prófíl sinn öðrum tilgangi.
(Ástæða þess að framangreindur listi er birtur hér er til að gefa leitarvélum á borð við Google beina ástæðu til að tengja þessi orð sem heildarpakka sérstaklega við Stefnumót.is, enda verða orðin í framangreindum lista notuð reglulega í auglýsingum á Google (Google AdWords) þegar Stefnumót.is er auglýst. Stakar útfærslur þessara orða má síðan finna í öllum prófílum Stefnumóts.is, sem undirstrikar mikilvægi þessara orða og þeirra orðasambanda sem þau finnast í.)
Um ábyrgð
Stefnumót.is er í stöðugri þróun og þó reynt sé eftir megni að láta notendur vita af breytingum með góðum fyrirvara þá áskilur vefurinn sér allan rétt til að breyta, uppfæra eða eyða hverju sem á vefnum er, hvenær sem er, án fyrirfram tilkynningar.
Notkun á vefnum er einskorðuð við fólk á lögaldri. Ef þú ert undir lögaldri, eða ef þú lítur út fyrir að vera undir lögaldri þó þú sért það ekki, þá skaltu ekki nota vefinn.
Þú notar vefinn á eigin ábyrgð og þú berð ábyrgð á öllu sem þú gerir og afleiðingum þess, beinum eða óbeinum
Almennt um texta og samskipti
Vertu kurteis.
Sýndi samferðamönnum þínum skilning, virðingu og tillitssemi.
Ef þú þarft að nöldra um eitthvað skaltu gera það annars staðar.
EKKI SKRIFA MEÐ HÁSTÖFUM. Internet-staðlar um samskipti telja svona skrif ígildi öskurs. Vefurinn áskilur sér rétt til að eyða prófílum þar sem almennur texti er skrifaður með hástöfum.
Almennt um myndir
Vefurinn setur sig ekki upp á móti því að fólk birti af sér smekklegar nektarmyndir. Á ytra byrði vefsins er fólki frjálst að birta af sér saklausar og fallegar myndir, en myndir þar sem meira er gefið í skyn eða meira sýnt þarf að birta í vina- eða prívatalbúmum.
Þegar ígrundað er hvort mynd megi birta á ytra byrði vefsins er gott að hafa karlatímaritið Playboy í huga. Allt sem birt er í því riti mætti birtast á ytra byrði Stefnumóts.is. En ef lengra væri gengið þyrfti að einskorða birtingu myndarinnar við innra byrðið.
Þó skal haft í huga að aldrei má nokkru sinni birta myndir sem eru klámfengnar, klúrar, kynferðislegar eða dónalegar, ekki einu sinni í prívatmyndum. Notendum sem vilja birta slíkar myndir af sér er bent á að nota frekar systurvef okkar, PurpleRabbit.is.
Skilmálar varðandi prófílmyndir
Prófílmyndir eru birtar efst í vinstra horni prófíls þíns og eru það fyrsta sem fólk sér þegar það lítur á prófílinn þinn.
Þú mátt birta myndir af þér og þinni fjölskyldu og þínu fólki og þínum dýrum og þínu um hverfi og hverju öðru sem beinlínis er hluti af þér og þínu daglega lífi að því gefnu að þú sért á myndinni eða þú hafir tekið myndina.
Aðal-prófílmyndin ætti ávallt að vera af þér og annað fólk ætti ekki að sjást á þeirri mynd.
Til að hlaða inn prófílmyndum smellirðu á Prófílmyndir efst í hægra horni vafrans og velur svo Vinna með prófílmyndir.
Þú ræður hverjir mega sjá prófílmyndir sem þú birtir. Til að stilla sýnileik prófílmynda ferðu í Veggurinn > Stillingar og velur þá stillingu sem við á. Þessir valkostir bjóðast:
- a) Allir mega sjá.
- b) Bara vinir mega sjá.
- c) Bara innskráð fólk má sjá.
Skilmálar varðandi ljósmyndir og hreyfimyndir
Ljós- og hreyfimyndir eru birtar í tilsvarandi albúmum vefsins.
Þú mátt birta myndir af þér og þinni fjölskyldu og þínu fólki og þínum dýrum og þínu um hverfi og hverju öðru sem beinlínis er hluti af þér og þínu daglega lífi að því gefnu að þú sért á myndinni eða þú hafir tekið myndina.
Þú ræður hverjir mega sjá þær ljós- og hreyfimyndir sem þú birtir. Til að stilla sýnileik þinna mynda velurðu viðeigandi albúm þegar þú birtir myndina. Þú getur líka flutt mynd á mili albúma. Þessi myndaalbúm eru í boði, bæði fyrir ljós- og hreyfimyndir:
- a) Almenna albúmið, sem allir geta séð.
- b) Vinaalbúmið, sem bara vinir þínir geta séð.
- c) Prívatalbúmið, sem bara sérvaldir vinir þínir geta séð.
Til að birta ljósmynd í albúmi smellirðu á Mínar myndir efst í hægra horni vafrans, og velur svo Sækja mynd, og svo velurðu albúmið sem myndin á að birtast í. Til að skipta um albúm á mynd sem þú hefur þegar birt smellirðu á Mínar myndir, velur myndina sem við á, smellir á hana, velur albúmið sem hún á að birtast í, stillir gestalistann ef um prívatmynd er að ræða, og vistar.
Til að birta hreyfimynd í albúmi smellirðu á flipann Hreyfimyndir og síðan Sækja hreyfimynd, og svo velurðu albúmið sem myndin á að birtast í. Til að skipta um hreyfimynd sem þú hefur þegar birt smellirðu á flipann Hreyfimyndir, síðan Mínar hreyfimyndir, smellir á hreyfimyndina sem við á, breytir um albúm, stillir gestalistann ef um prívatmynd er að ræða, og vistar.
Eftirlit
Dagleg umsjón vefsins er í höndum vefstjóra.
Í þessu felst að vefstjóri fer yfir alla prófíla sem eru stofnaðir og allt myndefni sem er birt og fullvissar sig um að allt sé eins og það á að vera.
Nú sér vefstjóri eitthvað sem er ekki eins og það á að vera hefur þá eftir atvikum samband við eiganda prófíls og óskar eftir útskýringu eða lagfæringu, eða eyðir því sem er öðruvísi en það má vera.
Úrskurður vefstjóra er endanlegur í öllum málum og verður ekki áfrýjað.
|
|
