Skilmálar þessir gilda fyrir alla notkun á stefnumot.is í hvaða mynd sem hún kann að vera. Þeir kunna að verða endurskoðaðir án fyrirvara ef þörf krefur.
Með skráningu á stefnumot.is samþykkir notandi að lúta eftirfarandi skilmálum. Samþykki skilmálanna er skilyrði þess að notandi megi skrá þig á vefinn og nýta þá möguleika og þjónustu sem stefnumot.is bíður upp á.
Notandi lýsir yfir og ábyrgist að hann hafi náð 18 ára aldri og að hann sé fær um að taka á sig þær skuldbindingar sem skilmálar þessir segja til um.
Þegar talað er um stefnumot.is hér eftir er átt við eigendur, stjórnendur, umsjónarmenn og aðra forsvarsmenn vefsins.
Haga skal notkun í samræmi við góða siði og umgengnisreglur sem almennt eru viðurkenndar á Internetinu. Ærumeiðingar og árásir á aðra notendur eru ekki liðnar. Þú samþykkir að senda ekki inn innlegg sem innihalda móðgandi eða særandi efni. Stefnumot.is getur þó ekki borið ábyrgð á orðum eða athöfnum notenda og ábyrgist ekki innlegg eða annað efni sem notendur senda inn.
Stefnumot.is ber enga ábyrgð á röngu innihaldi auglýsinga. Notandi ábyrgist að efni og öll gögn sem hann hleður inn séu hans eign og að allar upplýsingar séu nákvæmar og réttar. Stranglega er bannað að villa á sér heimildir. Þá er óheimilt er að birta símanúmer, netföng eða heimilisföng í prófílum. Notandi þarf að eiga höfundarrétt að öllum gögnum sem hann hleður inn í kerfið. Gerist notandi sekur um brot á höfundarrétti er það alfarið á hans eigin ábyrgð.
Óheimilt er að hlaða inn grófu klámefni. Allt efni sem sýnir nekt eða hægt er að flokka sem erótískt efni skal merkja sem "Gróft efni (18+)".
Verði notandi var við ólöglegt eða siðlaust efni skal hann ekki líta á það sem einkamál heldur tilkynna það til stjórnenda vefsins.
Sendingar á ruslpósti eða fjöldaskilaboðum eru bannaðar. Þá eru auglýsingar af nokkru tagi bannaðar nema á spjallborðinu í flokknum "Söluhornið". Stranglega er bannað að auglýsa til sölu eða óska eftir stolnum hlutum, ólöglegum efnum eða ólöglegri þjónustu.
Notandi er að fullu ábyrgur fyrir varðveislu og notkun þeirra aðgangsupplýsinga sem honum er úthlutað. Þá er notandi jafnframt ábyrgur fyrir afleiðingum af notkun þeirra. Óheimilt er að nota aðgang annarra notenda. Þar með talið er óheimilt að lána óviðkomandi aðgangsorð, reyna að komast yfir aðgangs- og lykilorð annarra eða nota á annan hátt gögn eða samskipti sem tilheyra öðrum. Notandi skal láta stefnumot.is tafarlaust vita ef grunur vaknar um að aðgangsupplýsingar hafi mögulega komist í hendur óviðkomandi aðila eða ef grunur vaknar um óheimila notkun á vefnum. Stefnumot.is ber ekki í neinum tilvikum ábyrgð á skaða eða tjóni sem kann að hljótast af notkun aðgangsupplýsinga sem afhentar hafa verið notanda.
Stefnumot.is ber ekki neina ábyrgð á samskiptum sem eiga sér stað í gegnum vefinn. Jafnframt ber stefnumot.is enga ábyrgð á tjóni sem kann að orsakast í tengslum við notkun á vefnum né ef ekki er hægt að nota vefinn af einhverjum ástæðum. Notandi gerir sér grein fyrir því að vefurinn og kerfið er á Internetinu og getur sem slíkt lent í árásum tölvuþrjóta. Notandi afsalar sér öllum bótakröfum á hendur forsvarsmanna vefsins vegna villna, bilana, aðgangsskorts, gagnataps, tölvuárása, minnkaðs hraða eða skorts á virkni þeirra möguleika og/eða þjónustu sem vefurinn bíður upp á.
Stefnumot.is áskilur sér fullan og skilyrðislausan rétt til að stöðva eða hamla notkun notenda, tímabundið eða varanlega. Þar með talið að loka aðgangi notenda, banna IP tölur og breyta, færa eða eyða efni og gögnum ef og þegar það sér ástæðu til, fyrirvaralaust og án útskýringa. Þá áskilur stefnumot.is sér rétt til að geyma IP tölur notenda sem og allar upplýsingar og öll gögn sem sett eru á vefinn eða fara í gegnum kerfið.
Stefnumot.is áskilur sér rétt til að afhenda lögreglu öll þau gögn sem hún kann að óska eftir.
Allur hugsanlegur ágreiningur sem rísa kann vegna þessara skilyrða skal leystur af íslenskum dómstólum.
Með því að samþykkja þessa skilmála staðfestir þú að hafa lesið allt sem fram hefur komið hér að ofan og að þú munir fylgja þeim reglum sem settar eru.











