
Stefnumót
Stefnumót.is er nýr stefnumóta- og samskiptavefur sérlega uppsettur fyrir íslenzkar aðstæður.

Þú stofnar prófíl og segir frá þér og manneskjunni sem þú vilt kynnast.
Þú birtir myndir og vídeó og sýnir þig í réttu ljósi.
Þú kynnist nýju fólki og eignast nýja vini sem deila þínum lífsgildum.
Vefurinn er ókeypis. Það kostar ekkert að vera með prófíl. Öll samskipti eru ókeypis.
Þú ræður hverjir sjá myndirnar þínar og vídeó. Þú velur um að allir megi sjá, bara vinir þínir, eða bara sérvaldir vinir þínir.
Stefnumót.is er frjálslyndur vefur en ekki djarfur. Lestu skilmála vefsins þér til uppfræðslu.
Umsjónarmaður vefsins ber titilinn vefstjóri og til hans skyldi beina fyrirspurnum, kvörtunum og hrósi.
Láttu vini þína vita
Láttu vini þína á Facebook vita af okkur. Því fleiri sem vita, því fyrr kynnist þú nýju fólki sem hugsar eins og þú.
Stimpill á prófíl
Þú getur keypt stimpil á prófíl þinn, til að sýna öðrum svo ekki verður um villst að þér sé full alvara með skráningu þinni hjá Stefnumóti.is.

Staðfesting Staðfestur notandi sem þó vill ekki marka sér ákveðinn bás.
Rómantík Staðfestur notandi sem leitar að rómantík og ástríkum kynnum um lengri eða skemmri tíma.
Hjúskapur Staðfestur notandi í leit að nýjum kynnum með ástríkt framtíðarsamband og hjúskap í huga.
Ævintýri Staðfestur notandi sem vill krydda daglega tilveru sína að einhverju marki.
Að kaupa prófílstimpil
Stimpill sem þú kaupir fyrir prófílinn þinn gildir eingöngu í ákveðinn tíma og fellur síðan á brott. Auðvelt er að kaupa framlengingu eða nýjan stimpil.
Verðskrá okkar er einföld: Þér býðst 10 daga stimpill á kr. 500, 30 daga stimpill á kr. 900, og 90 daga stimpill á kr. 1800. Færsluhirðing er í höndum Valitors.is.
Til að kaupa stimpil fyrir prófílinn þinn skaltu innskrá þig og smella svo á Reikningur (Veggurinn > Reikningur).
|
|

