Ég fæ ekki staðfestingarpóst. Ég er með Hotmail.com
Opnaðu Hotmail pósthólfið þitt. Í vinstri dálk er valkostur sem heitir Junk. Smelltu á hann. Þar leynist líklega póstur frá admin [at] stefnumot.is með fyrirsögninni Email confirmation needed. Smelltu á póstinn.
Þá segir Hotmail: "You may not know this sender." Þér er gefinn kostur á að velja Mark as safe eða Mark as junk. Smelltu á Mark as safe.
Efst á skjánum eru núna skilaboð: "We've moved the message to your inbox." Farðu í innhólfið þitt og smellu á póstinn frá admin [at] stefnumot.is. Pósturinn opnast og þú sérð staðfestingarkóðann frá okkur og slóð. Notaðu annað tveggja til að staðfesta skráningu þína.
Þegar þú smellir á Mark as safe flytur Hotmail netfangið okkar yfir í Safe senders reitinn. Til að skoða þann reit og fullvissa þig um að allt sé eins og á að vera skaltu smella á Options > More options > Junk email > Safe and blocked senders > Safe senders. Hægra megin á þeirri blaðsíðu sérðu stórt hólf með fyrirsögninni Safe senders and domains og þar ætti netfang okkar (admin [at] stefnumot.is) að vera. Ef svo er ekki skaltu skrá netfangið admin [at] stefnumot.is sem Sender or domain to mark as safe þannig að þú getir örugglega móttekið póst frá okkur.
Ég fæ ekki staðfestingarpóst. Ég er með Gmail.com
Opnaðu Gmail pósthólfið þitt. Í vinstri dálk eru ýmsir valkostir. Þar gæti verið valkostur sem heitir Spam. Ef svo er ekki þá sérðu valkost sem heitir t.d. 5more eða 6more með lítilli ör hægra megin við. Smelltu á þann valkost, og þá finnurðu Spam valkostinn. Núna smellirðu á Spam. Í spam hólfinu þínu sérðu póst frá admin eða admin [at] stefnumot.is. Smelltu á póstinn til að velja/opna hann.
Efst í pósthólfinu eru ýmsir valkostir og hnappar. Einn þeirra heitir Not spam. Smelltu á hann, með póstinn frá okkur opinn/valinn. Þá gerist það sjálfkrafa að pósturinn flyst í innhólfið þitt. Farðu í vinstri dálk og smelltu á Inbox til að finna hann.
Í póstinum frá okkur er staðfestingarkóði og slóð. Notaðu annað tveggja til að staðfesta skráningu þína.
Staðfestingarpóstur: Getur kerfið endursent staðfestingarpóstinn?
Já, það er hægt svona:
Innskráðu þig. Vinstra megin á Veggnum þínum er kassi með yfirskriftinni Upplýsingar. Í honum er lína sem heitir Staða og í henni er orðið ÓSTAÐFEST ofan á rauðum bakgrunn. Þar á eftir er krækjan útskýring. Smelltu á hana.
Núna kemur upp gluggi með útskýringum. Þar er líka valkostur, krækja, sem lætur kerfið endursenda staðfestingarpóst á þig. Smelltu á krækjuna.
Pósthólfið mitt virkar ekki...
Ef þú getur ekki móttekið póst frá okkur þá getur þú ekki verið skráður notandi að Stefnumót.is.
Ef pósthólfið þitt er í lagi þegar þú skráir þig fyrst en hættir svo að vera í lagi síðar þá fær kerfið okkar póst til þín endursendan. Kerfið okkar er ekki hrifið af svoleiðis og einhverju síðar verður prófílnum þínum eytt.
Mig vantar öðruvísi hjálp!
Hafðu samband við vefstjóra. Sá öðlingur veit allt um þennan vef og getur ábyggilega aðstoðað þig svo sem þarf.
|
|
