færslur
Nú er búið að endurskrifa allan texta á LoveMe.eu. Hinn magnaði bandaríski textasmiður Hannah hjá Polimedia sá um það verk. Hún virðist hrista texta fram úr erminni eins og annað fólk drekkur vatn.
Á LoveMe.eu segir núna:
"LoveMe.eu is a brand new and entirely free dating community that will change the way you find and attract potential partners on the internet.
Moving past the limits of traditional online dating services, LoveMe.eu harnesses the people-reaching power of search engines to broaden your opportunities for lasting friendships, fun flings, and deeply meaningful relationships."
Þetta er sterkur text.
Ég notaði fyrsta paragrafið í auglýsingu sem ég setti á Facebook í gærkvöldi, og stílaði auglýsinguna inn á einhleypar konur, 30-49 ára, sem eru búsettar við Miðjarðarhafið, í mið-Evrópu, Skandinavíu, Úkraínu og Rússlandi.
Árangur þeirrar auglýsingar var mikill.
Ég jók daglega budgetið úr 20 dollurum í 100 dollara í morgun og ætla að láta það ganga þessa helgi og sjá hvað gerist, enda tel ég að LoveMe.eu sé nú tilbúið til ákafrar markaðssetningar á Facebook.

Notendur sem vilja sýna öðrum svo ekki verði um villst að alvara sé að baki skráningunni á Stefnumót.is geta nú keypt stimil á prófíl sinn því til staðfestingar.
Prófílstimpill er einskonar gæðamerki, enda kostar prófílstimpill peninga og verður ekki keyptur öðruvísi en með kreditkorti.
Mánaðarstimpill kostar kr. 900 en þriggja mánaða stimpill kr. 1800. Þetta er enginn kostnaður en samt það há upphæð að um hana er hugsað.
Val er um fjórar tegundir stimpla og má sjá skilgreiningu þeirra á forsíðu Stefnumóts.is.
Skoða má þá notendur sem hafa keypt sér stimpla með því að smella á flipann Fólkið og síðan þann stimpil sem áhugi er fyrir að skoða nánar.
Ennfremur má einskorða leit við fólk með ákveðna tegund stimpils.
Valitor.is [link] sér um greiðslumiðlun vegna stimpla.

Ég hef birt tilkynningu á vefnum undir fyrirsögninni Fjárfestar. Krækjuna má sjá allra efst á vefnum.
Í greininni sem að baki liggur upplýsi að ég sé að leita að fjárfestum sem vilja taka þátt í að markaðssetja vefinn LoveMe.eu, sem er systurvefur Stefnumóts.is, á erlendri grund.
Hér ræðir um útrás.

Sumir eiga til að skrifa texta með hástöfum.
Við erum vön að lesa texta þar sem bara fyrsti stafur í línu, nöfn, og annað því um líkt er ritað með hástöfum.
Þess vegna er erfitt fyrir okkur að lesa texta sem er bara skrifaður með hástöfum.
Staðlar í internet-samskiptum segja ennfremur að orð skrifað með hástöfum sé ígildi öskurs.
Þannig skrif kallast öskurskrif.
NÚNA ER ÉG AÐ ÖSKRA.
NÚNA ÖÖÖÖSKRA ÉG HÆRRRRA!!!!
Margar (flestar?) spjall- og umræðusíður út í heimi banna öskurskrif beinlínis.
Öskurskrif eru núna líka bönnuð á Stefnumót.is. Það kemur fram í skilmálum vefsins frá og með deginum í dag.
Ef ég rekst á öskurskrif í prófíl þá mun ég hafa samband við eiganda prófílsins og biðja viðkomandi að laga málið. Verði það ekki gert mun ég eyða prófílnum.
Það er leiðinlegt ef það truflar einhverja notendur að mega ekki nota hástafi eingöngu en þetta er gert með heildarhagsmuni vefsins í huga.
Öskurskrif eru ekki falleg.
EKKI SATT???

Ég uppfærði textann á forsíðu vefsins í morgun, og líka skilmála vefsins.
Ég er ágætlega skrifandi á íslenzka tungu en oft kem ég því ekki frá mér sem ég vil segja í fyrstu atrennu, eða finnst það sem ég sagði ekki nógu gott og vil reyna að gera það betra.
Notendur mega því eiga von á að allur texti Stefnumóts.is taki smávægilegum breytungum fyrstu vikurnar, á meðan ég er að finna jafnvægið.
Eftir það læt ég textann í friði.

Glöggur notandi hafði samband við mig og sagði sínar farir ekki sléttar.
Hún hafði klúðrað lykilorðinu sínu og smellti því á Innskrá og þar Gleymt lykilorð til að láta vefinn senda sér nýtt lykilorð.
En bréfið sem vefurinn sendi henni með nýja lykilorðinu innihélt ekkert lykilorð, sá reitur var tómur.
Hún sendi mér bréf og sagði frá þessu.
Það vildi svo til að þá mínútuna sem ég fékk bréfið var ég að spjalla við forritarann okkar á MSN og hann fór strax í málið og kippti þessu í liðinn.
Ég held að viðgerðin hafi tekið 10 mínútur frá því að mér barst bréf notandans.
Þetta er þeim mun skemmtilegra þar sem ég er á Grikklandi, notandinn á Íslandi en forritarinn í Rússlandi.
Fjarlægðir milli fólks og landa? Hvaða fjarlægðir?

Stefnumót.is hefur verið í gangi í rúma þrjá sólarhringa.
Í fyrradag kláraðist uppsetning vefsins og í gærmorgun sauð ég saman auglýsingu sem núna birtist á Facebook.
Facebook gerir ákveðnar kröfur um markhóp sk. "dating" auglýsinga.
Markhópur þeirrar auglýsingar sem nú er í gangi eru konur á Íslandi, 20 ára og eldri, sem skilgreina sig sem einhleypar, með áhuga á körlum, og sem tala íslensku.
Viðtökurnar voru ákaflega góðar í gær, tæplega 100 heimsóknir, sem er athyglivert því auglýsingin var bara í gangi hálfan sólarhring eða svo.
Sömu auglýsingu birti ég á Barnalandi.is og Er.is.
Viðtökur þaðan voru einnig mjög góðar, um 50 heimsóknir á ríflega hálfum sólarhring.
Það athygliverða við heimsóknir gærdagsins, sem voru 300+, er að helmingur þeirra kom til okkar vegna einhverrar útfærslu á nafni vefsins, Stefnumót, annað hvort slegið beint inn sem heimilisfang eða eins og útfærslan var slegin inn í leitarvélina hjá Google.
Þannig skiluðu t.d. útfærslunar Stefnumót, stefnumot, stefnumót.is og stefnumot.is álíka fjölda heimsókna hver.
Í morgun sauð ég saman auglýsingu sem mun birtast hjá Google AdWords, þ.e. þegar fólk slær inn einhver leitarorð í leitarreit Google, t.d. orðið gifting og orðasambandið 'gull og silfur'.
Auglýsingar hjá Google AdWords eru flóknar, það þarf að finna rétt orð og rétt orðasambönd sem leiða ekki bara til heimsókna heldur heimsókna frá fólki sem beinlínis á erindi á vefinn og skráir sig í framhaldinu og gerist virkir þátttakendur.
Það eru spennandi tímar framundan.

Í ársbyrjun 2005 keypti ég lénið Stefnumót.is, með það í huga að búa til almennilegan íslenzkan stefnumótavef, enda var að mínu mati enginn viðunandi vefur af því tagi til á landinu.
En það var þrautin þyngri að finna forrit sem var brúklegt í þetta verk, og það var ekki fyrr en 2007 að mig minnir sem fyrsta útgáfan af Stefnumóti.is fór í loftið, á alveg hriplekri útgáfu af Dolphin 6.0 sem Boonex.com framleiðir.
Þá kom í ljós að notkunarmynstur íslendinga á stefnumótavef er ekki alveg eins og gert var ráð fyrir. Meginþemað hjá hinum íslensku notendum var nefnilega að gefa sem allra minnstar upplýsingar um sjálfa sig.
Einn notandinn, kona, nafnlaus, sendi mér harðort bréf og húðskammaði mig fyrir að fara fram á upplýsingar um fæðingardag hennar. Annar notandinn, karlmaður, nafnlaus, vildi helst útbúa svohljóðandi auglýsingu: "Maður á góðum aldri vill kynnast konu með ýmislegt í huga" og láta hana nægja.
Mér var tilkynnt að svona væri þetta á Einkamál.is og það þætti alveg fullnægjandi þar og að þetta væri bara fínt.
Ég lét mér fátt um finnast enda ekki sammála og hélt áfram að þróa forritið á bak við vefinn Stefnumót.is, hann var opinn fyrir umferð en ekkert auglýstur en lénið er svo gott að notendur komu fyrir forvitnis sakir og skráningum fór fjölgandi.
Og því fjölgaði líka fólkinu sem vildi birta af sér nektarmyndir og kom til dæmis í ljós að karlmönnum finnst miklu auðveldara og skemmtilegra að birta prófílmynd af félaga sínum bísperrtum heldur en sínu eigin andliti.
Forritið á þessum tíma bauð ekki upp á að það væri blandað saman siðprúðu fólki og hálfstrípuðu fólki, og því varð til vefur sem í dag heitir PurpleRabbit.is og er í daglegri umræðu kallaður kanínan eða kanínuvefurinn. Þar er mikið af allsberu íslensku fólki.
Stofnun PurpleRabbit.is var mikið happaspor og hafa hinir fjölmörgu notendur hans frá upphafi tekið mjög virkan þátt í þróun hans og forritsins sem að baki hans liggur. Sá vefur á eftir að gera góða hluti þegar fram í sækir, bæði á Íslandi með PurpleRabbit.is og erlendis á sínu enska léni, PurpleRabbit.eu.
Vefurinn Stefnumót.is mallaði hins vegar áfram allan þann tíma sem kanínan var í sem örastri þróun, tiltölulega afskiptalaus á sinni hripleku og nánast upprunalegu útgáfu af Dolphin 6.0 forritinu.
Svo kom að því að vefþjónninn minn á Íslandi varð úreltur og þá flutti ég allt mitt dót á spánnýjan og hraðvirkan vefjón í Bretlandi, og þá var spurning hvað ætti að gera við Stefnumót.is.
Á þessum tíma höfðu mér áskotnast tvö lén, MyLoveDate.eu og LoveMe.eu, sem ég vissi ekki almennilega hvað ég átti að gera við.
Það sem ég gerði í einhverju bríaríi var að setja upp nýjustu útgáfuna af forritinu mínu - þetta er ennþá Dolphin 6.0 í grunninn en er orðið svo breytt að það er varla tvennu saman að líkja - og skella á því útliti Stefnumóts.is, þessu saklausa grænleita, og vísa léninu Stefnumót.is á það.
Jafnframt birti ég auglýsingar um MyLoveDate.eu á Facebook og stýrði þeim á íslenskar einhleypar konur á öllum aldri.
Það er skemmst frá því að segja að þessar auglýsingar virkuðu alls ekki, þetta var gríðarlegt flopp, og að þeir notendur sem komu að vefnum voru þeir sömu og notuðu lénið Stefnumót forðum, þeir komu bara í gegnum leitarvélar og nafnið Stefnumót.
Og aftur gerðist það að ég fékk bréf frá fólki sem vildi ekki gefa upp fæðingardag, frá fólki sem vildi birta innihaldslausar auglýsingar, og svo framvegis.
Og það er skemmst frá því að segja að ég hætti snarlega að eyða peningum í auglýsingarnar á Facebook og snéri mér að næsta verkefni.
Það verkefni var að búa til alþjóðlegan stefnumótavef fyrir enskumælandi fólk á léninu LoveMe.eu, sem er borið fram "Love me, you!" og er ákaflega sterkt ef rétt er með farið.
Útlitshönnuður kom að verkinu og bjó til bleikt viðmót, og forritarar komu að verkinu og bjuggu m.a. til "share" fítus þannig að það væri hægt að deila prófílum á Facebook, Twitter, o.sv.frv.
Sama gildir um einstakar myndir og vídeó í almennu albúmunum, það er hægt að deila hverri stakri mynd á hverskyns samskiptavefjum og vekja þannig athygli á prófíl eigandans.
Vefurinn er þess utan þannig úr garði gerður að stakir prófílar, og stakar myndir og vídeó, finnast í leitarvélum, en það er arfleifð frá PurpleRabbit.is.
Rúsínan í pylsuendanum mínum er svo þessi: Google samþykkti að birta AdSense auglýsingar á LoveMe.eu.
Þetta er nokkuð merkilegur áfangi því stefnumótavefir [dating sites] eru almennt taldir til áhættuvefja, og Google Checkout neitar t.d. að sjá um greiðslumiðlun stefnumótavefja.
LoveMe.eu er vefur byggður á Freemium hugmyndafræðinni, sem segir að allt eigi að vera ókeypis [free] nema viðbótarvalkostir [premium options] sem eru seldir sérstaklega.
Í tilfelli LoveMe.eu eru þessir viðbótarvalkostir stimpill á prófíl sem segir til um hverju notandinn sækist eftir sérstaklega, ásamt og með aðgangi að læstum ljósmynda og vídeóalbúmum vefsins þar sem notendur geta birt myndir sem þeir vilja ekki að rati fyrir augu almennings.
Þumalputtareglan hér segir að fyrir hverja 1000 gesti sem vefurinn fær verði 5-10 sem kaupa sér viðbótarvalkost.
Með því að Google samþykkir að birta auglýsingar á vefnum þá er tryggt að ókeypis hluti vefsins verði tekjuskapandi alveg til jafns við læsta hlutann, og líklega mun meira tekjuskapandi þegar fram í sækir.
LoveMe.eu verður því markaðssettur í Evrópu.
Og hvernig tengist þetta alltsaman Stefnumót.is?
Jú, á þann veg að nýjasta útgáfan af forritinu mínu, sem LoveMe.eu keyrir á og er upprunnin á PurpleRabbit.is, býður upp á lagskipta notkun sem miðast við aðgangsréttindi, keypt eða úthlutuð.
Þess vegna er hægt að keyra Stefnumót.is - þennan vef sem þú ert núna á - í lagskiptu formi þannig að ein tegund notanda getur verið á einu laginu en önnur tegundin á hinu laginu.
Til að byrja með verður allur texti á einu og sama laginu en boðið verður upp á þrjú lög fyrir myndir og vídeó.
Fyrsta lagið er það sem allur almenningur sér og kallast almenna albúmið.
Næsta lag er það sem er eingöngu sýnilegt þeim sem hafa bundist vinaböndum og kallast vinaalbúm.
Þriðja lagið er eingöngu sýnilegt sérvöldum vinum og kallast prívatalbúm.
Nefna má einnig að Stefnumót.is notar í augnablikinu nákvæmlega sama útlit og LoveMe.eu, enda er þar í augnablikinu um nákvæmlega sama forrit að ræða. En svo þróast vefirnir hvor í sína átt.
Í ljós hefur svo komið að Google er ekki tilbúið til að birta AdSense auglýsingar á Stefnumót.is, af því að megintungumál Stefnumót.is er íslenska. Þetta voru svolítið dapurlegar fréttir.
Í þessum rituðum orðum vorum við að klára uppsetninguna á Stefnumót.is. Allir fítusar hafa verið prófaðir, allar villur leiðréttar, allur texti þýddur (held ég) - og þá er í reynd bara að opna fyrir aðgang og hefja markaðssetningu.
Ég geri ekki ráð fyrir að Stefnumóti.is verði lagskipt frekar enda finnst mér sú útfærsla sem núna er uppi þjóna sínum tilgangi prýðilega.
Hins vegar vil ég athuga hvort Valitor eða Borgun séu til í að annast greiðslumiðlun fyrir vefinn. Þá er nefnilega hægt að bjóða fólki að kaupa stimpili á prófílinn sinn - alveg eins og á LoveMe.eu - og þá er líka hægt að bjóða fólki að gefa hvert öðru gjafir og annað smáræði. En þetta kemur í ljós á næstu dögum.
Ritað kl. 12:43 þann 26.07.2010
Bestu kveðjur,
Jens Kristjánsson
vefstjóri

Texti
Flokkar
Keyword
|
|
Við eigum enskan systurvef sem heitir LoveMe.eu. Líttu við.