Fjárfestar

Inngangur

Vegna fyrirhugaðrar ákafrar markaðssetningar stefnumótavefjarins LoveMe.eu til enskumælandi fólks í Evrópu í gegnum Facebook.com leitar undirritaður hönnuður og vefstjóri Stefnumóts.is og LoveMe.eu, Jens Kristjánsson, að...

  • a) lánsfjármagni
  • b) hlutafé
  • c) samblandi hvors tveggja

...svo hægt sé að hrinda þessu átaki í framkvæmd. Upplýsingar um áhættu verkefnisins, vangaveltur um hugsanlegar tekjur, og fjárþörf til markaðssetningar má sjá neðst í skjalinu.

Samantekt

LoveMe.eu er á ýmsan hátt óhefðbundinn stefnumóta- og samskiptavefur. Vefurinn er til dæmis alveg opinn og aðgengilegur hverjum sem er og notar leitarvélar á borð við Google til að koma upplýsingum um prófíla skráðra notenda á framfæri alþjóðlega á meðal enskumælandi fólks. Vefurinn er líka alveg ókeypis en aflar sér tekna með birtingu auglýsinga frá aðilum á borð við Google AdSense og Amazon Associates. Ýmislegt annað er líka til staðar sem gerir vefinn svolítið frábrugðinn öðrum stefnumóta- og samskiptavefjum.

Líklegt er að tekjur LoveMe.eu (og systurvefja) verði umtalsverðar þegar fram í sækir og geti skilað eiganda/eigendum sínum góðum arði ár eftir ár.

LoveMe.eu er systurvefur Stefnumóts.is og tæknilegur tvífari.

Forsendur

Stefnumóta- og kynningarþjónustur hafa verið til í einhverri mynd frá örófi alda, fyrst handvirkar, svo á pappír, og svo á símatorgum. Undanfarinn áratug eða svo hafa þessar þjónustur síðan í síauknum mæli verið að flytja starfsemi sína á netið, og nú er svo komið að þar verður ekki þverfótað fyrir þeim.

Gallin við vefina þessa velflesta, fyrir utan að þeir eru allir meira og minna eins í útliti og virkni, er að þetta eru lokuð samfélög.

Þú kemst ekki inn nema skrá þig og þá þarftu oftast að borga skráningargjald af einhverju tagi, annað hvort strax eða þegar þig langar til að eiga samskipt við einhverja notendur. Þú getur heldur ekki skoðað þá notendur sem þegar eru skráðir fyrr en þú hefur í það minnsta skráð þig en líklega einnig borgað einhverskonar gjald.

Þessi galli er eðlilegur því einhvern vegin verða þessi vefir að fjármagna sig. Og þegar um læst samfélag er að ræða þá er áskriftargjald af einhverju tagi eina lausnin.

Prófílar notenda í þessum læstu samfélögum finnast heldur ekki í leitarvélum, sem gerir það að verkum að sá notandi sem skráir sig hjá einhverjum einum svona stefnumótavef verður eiginlega að treysta því að hans framtíðarmaki sé nú þegar skráður eða muni innan tíðar skrá sig hjá þeim sama stefnumótavef.

Líkurnar á því eru sannast sagna ekki miklar.

Lausnin mín

Leitarvélar, með Google í fararbroddi, ná stöðugt betri árangri í að flokka innihald internetsins og ná stöðugt betri árangri í að birta það sem þær finna með skipulögðum og aðgengilegum hætti, á öllum algengum tungumálum. Þetta gera þær m.a. með því að lesa og skilja stök orð og samhengi orða og setja það í samhengi við umhverfið sem orðin birtast í.

Eigendum stærri og smærri heimasíðna býðst nú einnig að fjármagna heimasíður sínar með ýmsum hætti, t.d. með birtingu auglýsinga frá fyrirtækum út um allan heim, ýmist beint, sbr. Amazon Associates, eða óbeint, sbr. Google AdSense.

Ég fór þess vegna að velta fyrir mér hvort ekki væri hægt að búa til vef sem tæki á öllu framangreindu og ýmsu til viðbótar. Þ.e.a.s. að búa til:

  • Vef sem er öllum opinn.
  • Vef sem kostar ekkert að skoða.
  • Vef sem kostar ekkert að nota.
  • Vef sem leyfir notendum að læsa því efni sem þeir vilja hafa læst.
  • Vef þar sem "hvert einstakt innihald" finnst sem sjálfstæð eining í leitarvél.
  • Vef sem er fjármagnaður með auglýsingum.
  • Vef sem ekki þarf að hafa mikið fyrir þegar hann er kominn í loftið.

Nú hef ég, með góðra manna hjálp, smíðað hugbúnað fyrir svona vef og ég hef nú þegar sannreynt að hann virkar.

Stóra málið í lausninni er að hver prófíll, og hver ljósmynd og hver vídeómynd (og bráðlega hvert blogg) sem tengist prófíl, er skráð eða a.m.k. skráanlegt sem sjálfstæð eining í leitarvél (varðandi ljós- og vídeómyndir fer þetta svolítið eftir þeim texta sem notandi skráir samhliða).

Prófíll minn hjá LoveMe.eu lítur t.d. svona út: http://loveme.eu/webmaster. Þetta er sjálfstæð eining sem notar nafnið "webmaster" sem samnefnara, og undir því nafni er allt annað sem ég birti, hvert um sig sjálfstæðar einingar sem eiga þó allar sinn stóra samnefnara, þ.e. nafnið mitt og prófílinn minn. Og allir prófílar eiga sér síðan sinn stóra samnefnara, sem er sjálfur vefurinn.

Í heildina er þetta eins og köngulóarvefur með grilljón þráðum sem allir tengjast en allir liggja heim.

Ég er ekki að finna upp hjólið, þetta er aðferð sem er vel þekkt og má t.d. nefna að hver einstök frétt sem (flestir? allir?) íslensku netmiðlarnir birta er sjálfstæð eining þegar kemur að leitarvélum. En þessi aðferð er enn sem komið er fremur lítið þekkt innan stefnumóta- og samskiptageirans. Þannig fæ ég dálítið forskot.

Þessi aðferð gerir markaðssetningu á notendum líka hérumbil sjálfvirka, þar sem hver eining vefsins er skráð inn í leitarvél sem sjálfstæð eining og kölluð fram sem sjálfstæð hugsanleg leitarniðurstaða þegar viðeigandi stikkorð eru slegin inn, hvar sem er í heiminum. Fyrir vikið munu prófílar notenda dúkka upp í ólíklegustu kringumstæðum og fá traffík úr öllum hornum.

Í tilfelli stefnumóta- og samskiptavefjar skiptir þessi traffík öllu máli.

Vefirnir í loftinu - umfjöllun

LoveMe.eu

Þann 20. júlí 2010 fór í loftið vefurinn LoveMe.eu, sem er borið fram "Love me, you!" á ensku. Þetta er vefur fyrir enskumælandi fólk eingöngu. Vefurinn er sem stendur mjög varlega markaðssettur í gegnum Facebook til einhleypra, gagnkynhneigðra kvenna, 30-49 ára, í nokkrum evrópulöndum þar sem enska er ekki aðal-tungumálið.

Þegar LoveMe.eu hefur verið stilltur af og fínpússaður er stefnt á að kynna hann einnig í Bretlandi í gegnum Facebook fyrir sama markhóp. Þá verður líklega einnig bætt við auglýsingum sem ná til gagnkynhneigðra, einhleypra karla á svipuðu aldursskeiði.

Þegar LoveMe.eu er skoðaður má sjá að auglýsingar frá Google AdSense og Amazon Associates birtast alltaf í fæti blaðsíðu en stundum einnig innan um efnið á blaðsíðunni. Aldrei eru þó fleiri en þrjú auglýsingapláss á hverri blaðsíðu, og það er rúmt á milli þeirra, sem verður til þess að auglýsingar verða ekki uppáþrengjandi.

Þegar LoveMe.eu er skoðaður nánar má einnig sjá að notendur geta keypt sk. "verification stamp" á prófílinn sinn en með því getur notandi staðfest að honum sé full alvara með skráningu sinni. Notendur geta einnig keypt gjafir handa vinum sínum. Gjafaverslunin kemur þó einungis í ljós þegar notendur hafa tengst vinaböndum, og má þá finna hana beint undir prófílmynd.

Stefnumót.is

Í loftið fór einnig á svipuðum tíma islenska "lókalíseraða" útgáfan af þessum hugbúnaði á léninu Stefnumót.is. Sú útgáfa er nánast alveg eins og LoveMe.eu nema hvað Google AdSense auglýsingar birtast þar ekki. Ástæða þess er sú að íslenska er ekki skilgreind sem megin-tungumál hjá Google, til þess er markhópurinn íslenski of lítill, og þess vegna vill Google AdSense ekki auglýsa á Stefnumóti.is.

Hins vegar er talið líklegt að auglýsingar frá íslenskum fyrirtækum muni reglulega birtast á Stefnumóti.is þegar fram í sækir enda er talið fullvíst að Stefnumót.is verði með fjölsóttari vefjum landsins innan tveggja ára, og þess vegna kjörinn vettvangur til markaðssetningar á vörum, þjónustu og upplýsingum.

Til gamans má nefna að í undanfara kosninganna árið sem Framsóknarnflokkurinn vann stórsigur, sem var það sama ár og Halldór Ásgrímsson brosti hvað breiðast í spjallþætti Gísla Marteins Baldurssonar á RÚV, þá birti Framsóknarflokkurinn ákaflega grænar auglýsingar á vefnum Einkamál.is, sem þá var í einkaeigu. Ég tel að þessar auglýsingar hafi haft sitt að segja um gott gengi flokksins í þeim kosningum.

Almennt séð tel ég ennfremur að upplýsinga-auglýsingar stjórnmálaflokka eigi mjög vel heima á stefnumóta- og samskiptavefjum, ekki bara í aðdraganda einhvers heldur alltaf - enda má alltaf ná til landsmanna á stefnumóta- og samskiptavefum en síður á baráttufundum út í bæ.

Til dæmis væri að mínu viti mjög skynsamlegt ef einhver einn stjórnmálaflokkur myndi kaupa "sponsorship" á Stefnumóti.is í eitt eða fleiri ár, búa til góða auglýsingu og vísa henni á bloggið sitt þar sem umfjöllun um málefni líðandi stundar lituð af skoðunum flokksins væri birt og endurnýjuð á 2-3 daga fresti. Ég er nokkuð viss um að landsmenn myndu vita allt um áherslur og málefni þess flokks í næstu kosningum.

Stefnumót.is er sem stendur markaðssett til lögráða, einhleypra, gagnkynhneigðra Íslendinga gegnum Facebook, af og til með einföldum myndaauglýsingum á vefjunum Barnaland.is og Er.is, brátt í gegnum leitarvél Google með Google AdWords, og líklega einnig víðar þegar fram í sækir.

Viðskiptamódel

Viðskiptamódel LoveMe.eu og væntanlegra systurvefja er ákaflega einfallt.

  • Google AdSense og hliðstæðir auglýsendur greiða aðallega fyrir smelli á auglýsingar.
  • Amazon Associates og hliðstæðir auglýsendur greiða eingöngu fyrir viðskipti sem eiga sér stað í framhaldinu af smell.

Verðið sem Google AdSense greiðir fyrir smellinn fer eftir því hversu vinsæll (les: verðmætur) vefurinn er sem auglýsingin birtist á. Með öðrum orðum: Því vinsælli sem vefurinn er, því dýrari er auglýsingin.

Þegar Google AdWords er notað til að kaupa stikkorð eða atriðisorð (e. keyword) sem tengjast stefnumóta- og samskiptavefjum á ensku þá þarf auglýsandinn þessa dagana (lok júlí) að bjóða í kringum 7 dollara fyrir smellinn til að komast yfirleitt á blað hjá vinsælum, verðmætum vef.

Það segir sitt um afraksturinn til eigenda þeirra vinsælu og verðmætu vefja sem auglýsingin birtist á.

Google gefur ekki upp hvernig þeir reikna verðmæti vefja. En reynslan af LoveMe.eu þá daga sem vefurinn hefur verið í loftinu gefur tilefni til að ætla að það skili sér í augnablikinu um 10 evrur í kassann fyrir hverjar 1000 heimsóknir, sem mér þykir alveg merkilega há upphæð fyrir jafn ungan og verðlausan vef, og gefur mér miklar væntingar fyrir framhaldið.

Ekki er vitað um verðmæti vefja á öðrum tungumálum en ensku sem stendur.

Samanburður

Vefur sem byggir á sama viðskiptamódeli og LoveMe.eu, þó hann sé í allt öðrum geira og miklu sérhæfðari, er íslenski vefurinn DressUpGames.com, sem hefur verið í loftinu í áratug eða svo. Sá vefur byggir tekjur sínar eingöngu á Google AdSense og skilar sínum eiganda ágætum tekjum sbr. frétt Mbl.is frá 2009.

Þegar DressUpGames.com er skoðaður í greiningarsíðum má sjá að Sitelogr.com telur til dæmis að 76.000 heimsóknir á dag skili vefnum daglega um 230 dollurum í kassann. Þetta er ákaflega vanáætluð tala m.t.t. fréttar mbl.is, sem er líklega réttari, en heimsóknafjöldinn er athygliverður: þetta eru nánast tvöfalt fleiri heimsóknir á dag en íslenski vefurinn Mbl.is fær skv. greiningu Alexu.com og þó er Mbl.is fjórði vinsælast vefur Íslands skv. sömu greiningu.

Þessu tengt er líka gaman að glugga í Google Insights, sem sýnir notkun stikkorða og orðasambanda við leit á Google undanfarin ár. Nota má stikkorðin dating site sem upphafsreit skoðunar og þá kemur ýmislegt spennandi í ljós.

Áætlaðar tekjur

Það er ekki með nokkru móti hægt að áætla tekjur LoveMe.eu (og systurvefja).

Hins vegar liggur fyrir að góðir stefnumóta- og samskiptavefir eru meðal vinsælustu og fjölförnustu vefja samtímans og að notkun þeirra eykst með ári hverju.

Ef við gefum okkur að það sem Google AdSense virðist gefa LoveMe.eu í augnablikinu, 10,- evrur pr. 1000 heimsóknir, verði reyndin í framtíðinni, og að LoveMe.eu fái um 20.000 heimsóknir á dag eftir eitt til tvö ár, þá yrði mánaðarveltan um 6.000,- evrur, sem gerði ársveltu upp á 72.000 evrur, sem eru rúmar 11 milljónir miðað við núverandi gengi. (Þessar tekjur gefa ágæta framfærslu fyrir einn mann.)

Ef við gefum okkur það sem ég tel hugsanlegt, að LoveMe.eu muni fá um 100.000 heimsóknir á dag eftir 2-3 ár en að verðmæti vefjarins verði óbreytt frá því sem er í dag, þá mundu koma um 1.000,- evrur í kassann á dag, sem myndi gefa ársveltu upp á 360.000,- evrur eða svo, eða rúmar 55 milljónir.

Ef við gefum okkur það sem ég tel líklegt, sem er um 100.000 heimsóknir á dag eftir 3-4 ár og tvöföldun á vermæti vefjarins frá því sem er í dag, þá yrði ársvelta LoveMe.eu um 700.000 evrur.

Ótaldar eru í þessu tekjur sem vefurinn mun hafa af kaupum notenda á stimplum og gjöfum. Þumalputtareglan sem ég vinn út frá í þessu er að fyrir hverja 1000 skráða notendur komi um 100 evrur í kassann og að slik kaup fari að láta kræla á sér þegar um og yfir 1000 notendur hafa skráð sig og verði orðin marktæk þegar 5000+ notendur eru komnir á vefinn.

Rekstrarkostnaður

Það er auðvelt að áætla rekstrarkostnað LoveMe.eu (og systurvefja) enda hefur hugbúnaðurinn frá upphafi verið hannaður með það fyrir augum að vefir sem keyrðu á honum þyrftu sem allra minnst utanumhald.

Í neðangreindum tölum nefni ég fyrst lágmarkskostnað við utanumhald, og svo hámarkskostnað, en hámarkskostnaðurinn er það sem ég tel raunhæft með 100.000 heimsóknum á dag, sbr. ofangreint.

Í hámarkskostnaðinum er gert ráð fyrir þrískiptri vakt allan sólarhringinn allt árið, með yfirumsjón vefstjóra. Vaktmenn sjá um að eyða út ósæmilegum myndum og prófílum, blokka spammara, hjálpa fólki, o.sv.frv. Sjálfvirk spam-vöktun er sérhæfð þjónusta frá bresku fyrirtæki sem rekur "fótspor" spammara og blokkar þá. Hugbúnaðurinn minn er með IP vöktun en spam-vöktun kæmi þar á ofan.

Allar tölur er pr. mánuð, í gjaldmiðli þess lands sem selur þjónustuna:

  • Hýsing (managed hosting, Webhosting.uk.com, Bretland): 150 - 300 bresk pund
  • Forritun (Freelancer.com, ýmsir): 500 - 1.500 US dollarar
  • Grafík, texti (Freelancer.com, ýmsir): 100 - 200 US dollarar
  • Vefstjórn (Jens): 1.500 - 6.000 evrur
  • Vakt 24/7 (hámark) (Freelancer.com, ýmsir): 6.000 evrur
  • Sjálfvirk spam-vöktun (hámark) (Bretland): 1.000 evrur
  • Bókhald (Kýpur): 200 evrur
  • Auglýsingar (Facebook, Google, aðrir): 1.000 - 10.000 US dollarar
  • Spjallborð: 100 - 2.000 US dollarar

 

Markaðssetning

Þegar leitarvélar meta vægi vefja á netinu er m.a. tekið tillit til tengdra vefja (e. linked sites, e. permalink), hversu margir þeir eru og hvers eðlis þeir eru og hversu góðir þeir eru.

Þess vegna er núna verið að búa til tvo upplýsingavefi, DatingInEurope.info og DatingInScandinavia.info, sem verða ek. uppflettirit yfir alla stefnumótavefi annars vegar Skandinavíu og hins vegar Evrópu.

Þetta verða vandaðir vefir sem verður vel við haldið og þeir munu líklega munu eldast eins og gott vín, öðlast virðingu og vægi hjá leitarvélum og ævinlega verða í topp-10 listanum yfir hin og þessi "keyword" sem tengjast stefnumótavefjum í Skandinaviu og Evrópu.

Stefnumót.is (fyrir Skanvinavíu/Ísland) og LoveMe.eu (fyrir Evrópu/enskumælandi lönd) munu skipa öndvegi á þessum vefjum og þess vegna með tíð og tíma fá mikla og góða, sjálfvirka athygli.

DatingInEurope.info og DatingInScandinavia.info munu birta auglýsingar frá Google, Amazon og e.t.v. fleirum, og verða þannig sjálfstæðar tekjuskapandi einingar fyrir utan að styðja við tilvist LoveMe.eu með "permalink".

Til viðbótar við "sjálfvirka" markaðssetningu vefsins í gegnum leitarvélar hyggst ég m.a. nota samskiptavefinn Facebook.com til að koma LoveMe.eu á framfæri við sinn eiginlega markhóp, sem er einhleypt fólk á lögaldri sem talar ensku.

Það er tiltölulega ódýrt að auglýsa stefnumótavefi á Facebook.com.

Ég er núna að borga í kringum 40 cent (dollarar) per smell fyrir að auglýsa lénið Stefnumót.is fyrir íslendingum, og ég er að borga um 60 cent per smell fyrir að auglýsa LoveMe.eu fyrir enskumælandi fólki utan enskumælandi landa.

Ég er núna með budget upp á ca. 20 dollara pr. dag pr. lén.

Þetta budget virðist vera ríflegt eða a.m.k. hæfilegt fyrir Stefnumót.is. Með því næ ég til allra íslendinga á lögaldri sem hafa skráð sig einhleypa á Facebook og virðast aurarnir duga til að halda léninu að fólki viðstöðulaust. Þetta gæti þó breyst þegar dregur að hausti/vetri og ef ég fæ mikla samkeppni með þennan markhóp.

Ég vil hins vegar gjarnan eyða um og yfir 100 dollurum á dag í að markaðssetja LoveMe.eu fyrir enskumælandi fólki í Evrópu, að Bretlandi meðtöldu, í gegnum Facebook. 100 dollarar á dag gera um 375.000,- krónur íslenskar á mánuði m.v. núverandi gengi.

Þannig pening á ég ekki til í augnablikinu.

Þess vegna leita ég út á við með fjármögnun.

Fjárfestingin - möguleikarnir

Möguleiki 1 - lán

Með milligöngu Uppsprettu.is gætu áhugasamir aðilar lánað mér einhverjar milljónir króna til markaðssetningar og væntanlega fengið það fé til baka e.t.v.. með ágætum vöxtum. Nánar verður tilkynnt um þetta fyrirkomulag í haust.

Möguleiki 2 - hlutafé/hlutafélag

Ég hef áhuga á að stofna hlutafélag í kringum rekstur og markaðssetningu LoveMe.eu (og hugsanlegra fagurbleikra systurvefja þess, sbr. Stefnumót.is), og selja allt að 49% hlut í því hlutafélagi.

Hvert 1% í þessu óstofnaða hlutafélagi kostar kr. 250.000,- eða samsvarandi í evrum m.v. gengið 155. Þetta verð gildir út árið 2010 og er þá gert ráð fyrir að hlutafélagið hafi verið stofnað og hlutaféð innborgað fyrir árslok 2010.

Hlutafélagið mætti stofna hvort sem er á Íslandi eða á Kýpur, en gjaldmiðill Kýpur er evran, þar er þróað og stöðugt fjármálaumhverfi með 15% fjármagnstekjuskatt (minnir mig), og eyjan er að ganga í evrópusambandið. Bókhaldið yrði á íslensku á Íslandi en ensku á Kýpur.

Hlutur minn í þessu óstofnaða hlutafélagi verður a.m.k. 51%, ég gegni stöðu framkvæmdastjóra og sé um vefstjórn, daglegan rekstur og framþróun þessa verkefnis. Fjármálastjórn, bókhald og annað af því tagi vildi ég hins vegar helst vera laus við.

Áhætta - bæði lán og hlutafé

Ég vil taka skýrt fram að hér er um áhættufé og áhættufjárfestingu að ræða. Ég veiti engar tryggingar fyrir neinu, hvorki beinar né óbeinar, og ég get engu lofað. Mig grunar að hér sé komin mjólkurkú til framtíðar en ég get engu lofað og það gæti allt orðið öðruvísi en ætlað er og það gæti líka allt farið á hvolf.

Notendur gætu til dæmis ákveðið að LoveMe.eu væri fúll vefur og leiðinlegur og ónothæfur, og þá myndu þeir ekki skrá sig, og þá væri þessu sjálfhætt. Google AdSense gæti hætt við að auglýsa hjá LoveMe.eu. Amazon gæti dregið sig út. Svo gæti ég orðið fyrir strætó og lent á sjúkrahúsi og drepist.

Það getur allt gerst og það gæti allt farið á versta veg.

En ég á ekki von á því.

Þvert á móti á ég von á að þetta verði í reynd mjólkurkú, sem vissulega þurfi að nostra og dekra við alla tíð, en að hún verði ákaflega gjöful og þægileg og yndisleg í allri umgegni til allrar framtíðar.

Samband við mig

Viljirði setja þig í samband við mig til að spyrja einhvers standa neðangreindir möguleikar til boða.

  • Ég heiti: Jens Kristjánsson.
  • Facebook aðgangur minn er: http://facebook.com/jens.kristjansson
  • Sími minn er: +30 695 980 4573 (ég er á Grikklandi, á eyjunni Ródos)
  • Netfangið mitt vegna þessa verkefnis er: admin [at] loveme.eu.

Bestu kveðjur,
Jens Kristjánsson (sign)

Fyrst ritað á Ródos í Grikklandi þann 30. júlí 2010.

  • Uppfært 31. júlí 2010
    Uppfært 14. ágúst 2010
    Uppfært 3. september 2010 Uppfært 4. september 2010
Logo
Við eigum enskan systurvef sem heitir LoveMe.eu. Líttu við.